Hamingjan gerir mann gleyminn
Nýtt bloggElín Birna
Ég er komin með nýtt blogg á 123.is komin með leið á þessu bloggar.is drasli - liggur alltaf niðrihttp://www.123.is/elinbirna/default.aspx?page=home
Mars!!!Elín Birna
Mánuðurinn minn er loksins kominn, mars mánuður, útungunarmánuður.. Ég var búin að segjast ætla eiga í dag - 1.mars.. Thats not gonna happen.. Bíð bara fram á laugardag og unga út á afmælisdaginn hennar Ástu vinkonuAnnars eru 23 dagar í settan dag og ég er ekki byrjuð að gera neitt! Er voðalega róleg í þessu öllu saman eitthvað.
Ég er loksins hætt að vinna alveg núna, það þýðir ekkert að tala við mig um klipp fyrr en eftir einhverja 2 mánuði eða eitthvað, fer eftir því hvernig allt gengur.
Fæ "nýja" notaða kommóðu í kvöld og byrja ég líklega strax eftir helgi að þvo og raða í hana babystuff, rassaklútum, fötum og fleira.
Vaggan er komin í hús, en mig vantar himnasængina áður en ég byrja þvo utan af henni, liggur svosem ekki mikið á því, en ætla þrífa sængina og svoleiðis. Verður nóg að gera hjá þvottavélinni þegar ég fer að spá í því, og nýja þurrkaranum sem þurrkar loksins þvottinn!!
Elsku bestu foreldrar mínir eru komin heim úr úkklöndunum og verð ég að segja að ég er mikið búin að sakna þeirra. Mamma hringdi í mig í gær og bauðst til að sækja Hrannar úr leikskólanum (mér var búið að vera mikið illt í grindinni) og bauðst líka til að fá hann yfir nótt aðfaranótt laugardags! Þau eru bara yndisleg í alla staði!
Annars er það að frétta að ég held að Hrannar sé að fá þessa blessuðu gin & klaufaveiki.. Þessi vírus heitir á ensku hand, foot & mouth disease. Hann er búinn að vera voða vælinn, sérstaklega á nóttunni og ,var með smá hita í gær (37,8) en fínn í morgun. Svo er hann með einhver óþægindi í munninum þannig að hann slefar soldið og finnst held ég ekki gott að borða neitt nema kalt sé. Ekkert er hægt að gera við þessu, tíminn lagar flest sár, er það ekki alltaf sagt. En honum gæti versnað ef þetta er þessi vírus, er örugglega bara á byrjunarstigi núna. Við tökum bara helgina í þetta..
Hvað á annars að gera af sér um helgina??
Elín Birna
Ég fékk lit í hausinn í gær *smæl* hef ekki fengið lit síðan í nóvember! Alger hárgreiðslukona hér á ferð! Og það var enginn annar en hann Maggi sem skellti í mig, alger snilli. Nú brosi ég blítt.
Við (eða Maggi) er að pimpa bimmann upp, kominn á svaka blinbling felgur og fer í mössun í vikunni. svaka gella verð ég í sumar á kagganum :þ Verðum flott á ísrúntinum hehe, og nú brosir minn maður líka blítt.
Vika 37 hafin og fór ég í skoðun í morgun, allt í orden þar og fer ég ekki aftur fyrr en eftir 2 vikur!! og ef barnið verður ekki komið þá verður næsta mæðraskoðun eftir 5 vikur!! (þá verð ég gengin 41 viku) aldeilis er nú verið að minnka kostnaðinn, þegar ég gekk með Hrannar fór ég í 14 skoðanir en núna er meðaltal 7 skoðanir á fjölbyrjur. Mér er sama þó ég hafi verið ólétt áður, mér finnst alltof langt líða á milli skoðanna, stundum vantar manni svör við spurningum sem maður er ekkert að hringja útaf eða bara spjalla.. Mér finnst ekki ekki nógu sniðugt allavega.. En ég verð kanski bara búin fyrir 13.mars (sem er næsti skoðunardagur)
fór svo beint til Evu minnar í nudd og blíbbans snilld er það, ég hef verið að fara 1x í viku í nudd núna en væri alveg til í að fara oftar, geðveikt gott! hún Eva mín ætlar að læra svona þrýstipunktanudd til að koma fæðingu af stað og ljósan sagði í morgun að það væri óhætt að byrja á því frá viku 37! Stundum virkar þetta og stundum ekki, sakar ekki að prufa. Veit samt alveg að barnið kemur ekki fyrr en það er tilbúið sjálft.
Eftir nudd fór ég á Stælinn með Magga og pabba hans, við bættust svo nokkrir vinnufélagar þeirra. alltaf gott að fá stæl að borða.
Tengdamamma á svo stórafmæli í dag, en þau hjúin eru stödd í sólinni á Kanarí. Mamma og pabbi reyndar líka, en á annarri eyju, mín gömlu koma svo heim í kvöld og ég veit að Hrannari hlakkar mikið til að hitta þau.
Það er eitt sem er að bögga mig.. Við erum byrjuð að glápá Friends á kvöldin núna og erum komin á seríu 3.. Í einum þætti í gær var atriði sem böggaði mig soldið.. Afhverju voru Monica & Richard í brúðkaupinu hjá Barry & Mindy??? Einhver sem veit?
Nú er það Stöð2+ Nágrannar *Jei*
Minnkađar hreyfingar og ţurrkari enn og aftur.. ofl..Elín Birna
Frá því ég fór að finna reglulegar hreyfingar eða á viku 20 ca þá hefur barnið varla stoppað, kúlan búin að vera á iði, þar til núna fyrir tæpri viku þá fer ég að finna mikið minni hreyfingar.. Ætli það sé tengt því að ég er að reyna hvíla mig betur eða er þetta e-ð til að hafa áhyggjur yfir?Fékk annan þurrkara í gær og hélt ég væri loksins orðin ánægð með hann.. en svo er ekki.. Þessi er heldur ekki að þurrka vel! Búin að hringja í verslunina en veit ekki hvort maður á að taka tæki nr 3 eða skipta í ódýrari týpu og annað merki? Vil bara hafa þurrkara sem þurrkar fötin þar til þau eru þurr!
Hrannar minn var e-ð illt í bumbu í nótt og gubbaði í rúmið sitt en var svo sprækur sem lækur í morgun að ég sendi hann í leikskólann, það er jú öskudagur og mikið húllumhæ þar, allir mættu á náttfötunum og svo var kötturinn sleginn úr tunnunni (í henni var popp) svo hádegismatur, sem hefur e-ð farið illa í Hrannar, hann kastaði upp.. En þeim fannst hann alls ekki laslegur eða neitt svoleiðis, búinn að vera hress í allan morgun, þannig að við ætluðum bara að sjá til. Hef ekki fengið annað símtal, en fer að fara sækja hann fljótlega.
Ég svaf þar af leiðandi ekki vel í nótt, Hrannar vaknaði klukkan 12 og kl 2, gubbaði svo 3 og kom uppí, gubbaði aftur um 4 og ég gaf honum hrært kók þá (fyndið að sjá svipinn á honum, fyrsti kóksopinn, held ég..), var svo iðandi um til 7 þá vildi hann fara leika, en var samt uppí til að verða 8. Ég var alveg búin í skrokknum eftir að hafa haft hann uppí, ég nebbla hreyfi mig sem minnst þegar hann er, til að vekja hann ekki. En ég fór svo í nudd í morgun sem var bara ljúft og er búin að hvíla mig aðeins.
Við erum svo að fá gesti á eftir, mömmuhópurinn ætlar að koma, gaman að leyfa grísunum að hittast líka. Þau hittast of sjaldan! Við verðum margar bumburnar á eftir, en við erum 4 í hópnum sem eigum von á öðru barni! Bara gaman það!
Ojjjjj...Elín Birna
Sá þennan link á Bl og vildi deila þessu með ykkur..Opnið þennan link og spólið fram til 55.55, hvort eru þetta 2 kartöflur rúllandi eða 2 mýs að skokka í Bónus??
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/section?Category=VEFMIDLAR&Template=VefTV&ChannelID=10&ProgID=29950&ProgType=2003&ItemID=26641&progCItems=1
Ég er ekki klikkuđ!Elín Birna
Það Er e-ð að þurrkaranum okkar. Við erum búin að nota hann frá því við fluttum eða í rétt mánuð núna. Ég var aldrei sátt við hann og fékk viðgerðamann til að kíkja á hann fyrir 2 vikum síðan, hann smellti einhverri leiðslu í samband og frá því fór hann að þurrka betur, en samt ekki nógu vel.Það er rakaskynjari í honum og niðurteljaraklukka sem breytir sér, en oftar en ekki þá er þvotturinn frekar rakur, allavega ekki ready 2 wear, sem hann á að vera.
Ég hringdi aftur í morgun og tala við xpertinn í Max, fæ aftur viðgerðamann á morgun og hann á að skoða tækið með því hugarfari að ef þetta er ekki laganlegt fæ ég nýjan.
Mikið sakna ég gamla þurrkarans sem þurrkaði svo vel, vona að þessi skoðun á morgun nái að fixa þetta, komin með leið á að þurfa tví og þrístarta honum, hann Á að þurrka vel 80þús kr tæki! Eða það finnst mér allavega!
BollíBollí í dag, ég bakaði nokkrar bollur sem ég gef gæjunum mínum á eftir. annars verðum við í mat hjá mútter (fáum bollur í brúnni sósu, hefur verið hefð frá því ég man eftir mér) Heimir frændi er að koma í heimsókn þangað frá Dk með gæjann sinn og hlakkar mig til að hitta þá
Til hamingju konur, með konudaginn í gær. Vona að e-ð fallegt hafi verið gert fyrir ykkur af makanum eða þið sem eruð einar hafið gert e-ð fyrir ykkur sjálfar í tilefni dagsins!
Svo var síðbúin barnasturta hjá huggz á laugardaginn, og það var sko mikið étið skal ég ykkur segja! Takk fyrir daginn stelpur!
Bumbulína 35vikur +
SystkinasíđaElín Birna
Þá er komin þessi líka fína syskinasíða http://www.barnaland.is/barn/31320/ á eftir að laga smá til hér og þar, annars er lúkkið komið og ég er bara nokkuð ánægð með þaðSuddenly it hit me..Elín Birna
..Það fer alveg að líða að fæðingu!! Fattaði það eila á föstudaginn þegar e-ð fór að leka hjá mér.. Ekkert alvarlegt, lét samt ekkert tékka á því en það er alles gúdd sko..Vika 35 hafin og þetta gæti bara farið að bresta á, minn mánuður fer senn að koma! Áður en ég veit af verð ég stolt 2 barna móðir!
Hún elskulega móðir mín er til í að vera viðstödd aftur við þessa fæðingu (og auðvitað Maggi líka, hehe, hann sleppur ekkert við það (ekki að hann sé að biðja um það sko..)), sem gerir pabba að sjálfskipaðri barnapíu fyrir Hrannar á meðan (ef allt fer í gang um nótt) og treystir hann sér alveg í það hlutverk (kúkableyjur þar með taldar hehe) Það gerir mig mun rólegri því það er ekkert hver sem er sem getur passað Hrannar. Vil ekki vera með áhyggjur yfir því uppá fæðingardeild!
Var í skoðun áðan og allt leit ljómandi vel út, kollur lausskorðaður en það þarf ekki nema nokkra samdrætti til að skorðast alveg. Ljósan benti mér á þann möguleika að fæða í Hreiðrinu og er ég soldið heilluð af þeirri hugmynd (fyrir utan að þar er Mænudeyfing ekki í boði..) en allt annað, + að þar eru 3 heitir pottar í herbergjum, mikill möguleiki á að komast í BAÐ! Mér líður svo vel í vatni og væri svo til að fæða í vatni.
Bumbulína out
X - Factor í gćrElín Birna
UM ELLÝS
FRÁ OLÍS
TIL ESSO!!!
HARHARHARHARHAR.....
Ég er svo mikill auliElín Birna
Á ég að segja ykkur hvað ég gerði áðan?Byrja á því að segja að elsku brumminn okkar er orðinn soldil kuldaskræfa, hann fór ekki í gang um daginn í frostinu mikla og svo alltíeinu vildi ekki bílstjórahurðin opnast.
Nema hvað að ég næ ekki að opna hurðina áðan, príla þá (kasólétt) farþegameginn yfir í bílstjórasætið og fer þangað sem ég var að fara. Svo þegar ég er að fara í bílinn aftur ætla ég að tékka á hvort hurðin sé búin að lagast í sólinni..
Kippi ég þá ekki hurðahúninum af!! Stóð svo þarna kjaftstopp með húninn í hendinni!!